Logi Már Einarsson varaþingmaður Samfylkingarinnar í NA kjördæmi hefur tekið sæti á Alþingi, þar sem Kristján L. Möller þingmaður er í veikindaleyfi.Fyrir ári síðan greindist Kristján með góðkynja æxli í skeifugrön sem þurfti að fjarlægja. Í fyrrasumar var reynt að fjarlægja það með speglun, en það tókst ekki. Því var skurðaðgerð nauðsynleg, sem gerð var í síðustu viku.
Kristján segir að nú taki við endurhæfing og því verði hann frá þingstörfum um stund.