Löggan tístir í 12 tíma

Á föstudaginn kemur, 16.desember, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað Löggutíst. Í löggutístinu munu Lögreglan á Norðurlandi eystra og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessarra lögregluliða frá því kl.16  til kl.04 á laugardagsmorguninn. Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.

Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin. Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglanNE

Nýjast