Ljósabúnaður oft í ólagi
Lögreglan á Akureyri hefur stöðvað fjölda ökumanna undanfarna daga þar sem ljósabúnaður bifreiða er ábótavant.
Lögreglan hvetur ökumenn til að huga vel að ljósabúnaði áður en ekið er af stað. Oft vita ökumenn ekki af því að perur séu bilaðar, t.d. að aftan og því er gott ráð að kveikja ljós og ganga í kringum bílinn og athuga ástand ljósabúnaðarins., segir lögreglan, sem minnir einnig á endurskinsmerkin í rökkrinu.
throstur@vikudagur.is