Akureyrarkirkja er rómuð fyrir fagran hljómburð, en þar vantar sárlega flygil svo hægt sé að bjóða upp á enn fjölbreyttari tónlist.
Stofnaður hefur verið hljóðfærasjóður við kirkjuna, og hafa nokkrir öflugir listamenn frá Akureyri tekið höndum saman og ætla að halda söfnunartónleika í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 25. október kl. 20. Efnisskráin verður afar fjölbreytt eins og sjá má hér:
Eldri barnakór, Stúlknakór og Kór Akureyrarkirkju syngja.
Hjónin Petrea Óskarsdóttir flautuleikari og Þórarinn Stefánsson píanóleikari leika saman.
Birkir Blær Óðinsson, 12 ára gítarleikari tekur gítarsóló með Eyþóri Inga Jónssyni, organista.
Helena G. Bjarnadóttir syngur með Unu Björgu Hjartardóttur flautuleikara og Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur, organista.
Nýstofnaður karlakvartett Hjalta Jónssonar kemur fram í fyrsta sinn.
Óskar Pétursson tenór syngur sína uppáhalds hátíðartónlist
Haukur Ágústsson, stofnandi hljóðfærasjóðsins flytur negrasálma ásamt Daníel Þorsteinssyni píanóleikara.
Kynnir er Gísli Sigurgeirsson
Aðgangseyrir 2.500.-,