Líst mjög vel á nýtt starf

Friðjón Jónsson mjólkurfræðingur er ekki ókunnugur rekstri MS Akureyri en hann hefur starfað um árab…
Friðjón Jónsson mjólkurfræðingur er ekki ókunnugur rekstri MS Akureyri en hann hefur starfað um árabil hjá fyrirtækinu.

„Mér líst mjög vel á að taka við þessu starfi og hlakka til,“ segir Friðjón Guðmundur Jónsson sem tekur við starfi mjólkurbússtjóra MS á Akureyri 1. október næstkomandi, en þá lætur Sigurður Rúnar Friðjónsson af störfum. Sigurður Rúnar hefur verið mjólkurbússtjóri á Akureyri frá ársbyrjun 2007, fyrst hjá Norðurmjólk og síðan MS á Akureyri og mun starfa hjá vöruþróunardeild MS í Reykjavík.

Friðjón er mjólkurfræðingur og hefur um árabil starfað í mjólkursamlaginu á Akureyri. „Ég byrjaði sem unglingur hjá Mjólkursamlagi KEA sem þá var árið 1977 og þá kviknaði áhuginn,“ segir Friðjón, en hann hélt utan til Danmerkur til náms í mjólkurfræði. Síðar hefur hann einnig lokið námi frá Háskóla Íslands, fyrst í rekstri og stjórnun árið 1996 og í mannauðsstjórnun árið 2000.

Friðjón segir að til standi nú í haust og á næsta ári að endurnýja tækjakost samlagsins, nýjar skilvindur verða teknar í notkun síðar í haust og þá eru væntanleg glæný tæki til ostagerðar þegar kemur fram á nýtt ár. Hjá MS-Akureyri eru árlega framleidd um 3000 tonn af ostum, en um 60% af innveginni mjólk hjá samlaginu eru nýtt til ostagerðar.

„Þessi nýju tæki gera okkur betur í stakk búin til að mæta aukinni samkeppni á ostamarkaði,” segir Friðjón, en um heilmikla fjárfestingu er að ræða og er horft til framtíðar í þeim efnum. Hjá MS Akureyri vinna um 80 manns og er starfsstöðin sú þriðja fjölmennasta innan Mjólkur-samsölunnar.

Nýjast