Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýningu í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 2. febrúar 2013. Þar sýnir hún málverk sem flest eru máluð á síðasta ári og er viðfangsefnið íslenskur útsaumur sem fær nýtt hlutverk í meðförum listakonunnar.
Guðbjörg er fædd á Akureyri 1957 og útskrifaðist úr grafíkdeild MHÍ árið 1982. Hún hefur fengist við kennslu og myndlist frá útskrift og þá aðallega unnið með grafíkina. En um 2006 sneri hún sér að málverkinu og sýnir hér akrýlmálverk. Í ár eru liðin 30 ár frá fyrstu einkasýningu hennar og er sýningin í Hofi sú 26. Opið er frá klukkan 15-17. Sýningin stendur til 1. maí.
Guðbjörg er bæjarlistamaður Akureyrar 2012 til 2013.