Lifravinnsla með nýrri aðferð

Á fundi stjórnar Vaxtarsamnings Eyjafjarðar, nýlega var samþykkt að veita 4 milljóna króna styrk til verkefnisins; Lifrarvinnsla með nýrri aðferð. Forsvarsaðili verkefnisins er Norðurströnd ehf. á Dalvík, en verkefnisstjóri er Snorri Halldórsson. Aðrir aðilar sem koma að verkefninu eru Reykjavík Seafood ehf. og Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri. Markmið verkefnisins er að þróa og sannreyna aðferð við vinnslu á fisklifur, sem ekki hefur notuð hérlendis áður. Verkefnið er hafið og gert er ráð fyrir að því ljúki í desember 2012, en þá liggi fyrir mótað framleiðsluferli auk umtalsverðs magns lýsis sem verður afurð tilraunavinnslunnar.

Nýjast