Það hefur verið líflegt á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri það sem af er ári. Fyrstu sex mánuði ársins fæddust þar 255 börn í 252 fæðingum og þar var voru þrjár tvíburafæðingar, samkvæmt upplýsingum Eddu Guðrúnar Kristinsdóttur ljósmóður. Fyrstu sex mánuði síðasta árs voru fæðingarnar 185. Janúar í ár var einstaklega líflegur en þá voru fæðingarnar 50 talsins en undanfarin 10 ár hafa fæðingar í janúar verið að meðaltali 36. Árið 2011 voru fæðingar á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri alls 393, þar af fimm tvíburafæðingar og var heildarfjöldi barna því 398. Árið 2010 var metfjöldi fæðinga á deildinni. Það ár voru fæðingarnar alls 515 og börnin 521 en tvíburafæðingar voru 6 talsins.
Umfangsmiklar endurbætur hafa staðið yfir á fæðingadeildinni síðustu mánuði. Edda Guðrún segir að búið sé að taka tvær endurnýjaðar fæðingastofur í notkun og að mikil hamingja sé með allan aðbúnað þar. Framkvæmdir standa enn yfir á setustofu og tveimur legustofum en það er farið að styttast í að þeim ljúki, segir Edda Guðrún.