Lífeyriskerfið frá kynjafræðilegu sjónarhorni

Steinunn Rögnvaldsdóttir
Steinunn Rögnvaldsdóttir

Steinunn Rögnvaldsdóttir, MA í kynjafræði heldur fyrirlestur um rannsókn sína á íslenska lífeyriskerfinu á Jafnréttistorgi Háskólans á Akureyri á morgun. Niðurstöður rannsóknar Steinunnar Rögnvaldsdóttur á íslenska  lífeyriskerfinu frá kynjafræðilegu sjónarhorni varpa ljósi á hvernig staða kvenna á ellilífeyri ber mark áratuga kynjamismununar í íslensku  samfélagi. Ólaunuð heimilisstörf kvenna, kynbundinn launamunur og kynskiptur vinnumarkaður ásamt fleiri þáttum hafa myndað gjá milli  lífeyrisgreiðslna karla og kvenna. Í erindinu ræðir Steinunn nánar hver kynjamunurinn er á ellilífeyrisgreiðslum, orsakir og afleiðingar,  hvernig kvenvænt lífeyriskerfi lítur út, femínískar kenningar og álitamál um leiðir að efnahagslegu jafnrétti kynjanna, og hvernig hægt væri að jafna stöðu karla og kvenna á ellilífeyri.

Fyrirlesturinn hefst klukkan 12:00 í stofu M102

 

Nýjast