Léttara og betra að þrífa hænsnakofann

Siguður Sigmarsson er ánægður með núju sköfuna
Siguður Sigmarsson er ánægður með núju sköfuna

„Ég er mjög ánægður, það er léttara og betra að þrífa hænsnakofann,“ segir Sigurður Sigmarsson, en hann er umsjónarmaður með hænsnahaldi á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, gjarnan kallaður Siggi kóngur. Nokkrir krakkar í Naustaskóla hönnuðu fyrir hann sérstaka sköfu til að þrífa hænsnakofann en fyrir hönnun sína hlutu þeir verðlaun í keppni sem ber nafnið First lego league.

Íbúar á Hlíð halda 14 íslenskar hænur og þar er líka einn hani. Sigurður ber hitann og þungann af umhirðunni, en nemendur í keppnisliði Naustaskóla unnu að verkefni sínu í samvinnu við hann. Verkefnið í ár átti að snúast um lausn fyrir eldri borgara.

Nemendur heimsóttu Sigga í hænsnakofann og hann leit einnig við á nemendadegi þeirra.

Liðsmenn fengu gamla brotna snjósköfu í hendur og gerðu hana upp, m.a. sneru þeir henni við og gerðu meira kúpta þannig að auðveldara er að draga skítinn og sagið að sér og setja upp í skófluna og í fötu. Skaftið er léttara en á venjulegum sköfum og lengd hennar gerir að verkum að Sigurður þarf ekki að beygja sig þegar hann sinnir störfum sínum í hænsnakofanum.

Alls eru sjö nemendur á unglingastigi í keppnisliði Naustaskóla, Magnús Geir Björnsson, Almar Daði Björnsson, Elvar Orri Brynjarsson, Hildur Dóróthea Þórðardóttir, Brynjar Helgason,  Júlíus Fannar Thorarenssen og Baldur Bergsveinsson, þjálfari þeirra er Magnús Jón Magnússon kennari. Hópurinn er nú að hefja söfnun, en hann vann sér rétt til að taka þátt í alþjóðlegri keppni sem fram fer í Mannheim í Þýskalandi í maí.

„Við höfum safnað 160 þúsund krónum en þurfum eina milljón,“ segir Magnús, en þeir sem með einhverjum hætti vilja styrkja för Naustaskólanemanna geta sett sig í samband við hann.

Nýjast