Lestrarvöfflur á degi læsis
Alþjóðadegi læsis, sem er í dag, er fagnað um heim allan og er þetta í fimmta skipti sem Íslendingar taka þátt. Á Akureyri verður unnið með þemað ungir aldnir og verður af því tilefni boðið upp á ljúffengar ?"Lestrarvöfflur í Eymundsson og á Öldrunarheimilum Akureyrar frá klukkan 14 -16 og fylgir vöfflunum hvatning um að lesa saman, hvert fyrir annað, ræða og njóta. Lesefnið getur verið í formi bókar, tímarita, spjaldtölvu, myndasögu eða hljóðbókar. Allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Gestir Öldunarheimilanna eru hvattir til að lesa fyrir íbúa/heimilisfólk, lesa með þeim, hlusta hvert á annað, ræða um lesefni eða sökkva sér sjálfir niður í lesefni að eigin vali enda er húslestur gamall og góður siður sem vert er að viðhalda.
Opnuð verður heimasíðan í tilefni af Alþjóðadegi læsis og verður þar að finna upplýsingar og hugmyndir í tengslum við daginn.