Gjaldskrá leikskólans í Eyjafjarðarsveit lækkaði að meðaltali um 1,3 % um áramótin. Mest nemur lækkunin hjá barni í sjö tíma dagvist og fer úr 18.066 krónum á mánuði niður í 17.500 krónur, eða 3,13% lækkun. Einnig mun afsláttur hækka um 5-10% hjá námsfólki, einstæðum foreldrum og atvinnulausum. Ennfremur verður 33,33 prósenta afsláttur ef báðir foreldrar eru atvinnulausir, eða í námi, eða annað foreldrið atvinnulaust og hitt í námi.