Leikskólagjöld á Akureyri hækka um sex prósent um áramótin. Sem dæmi mun það kosta foreldra 31.430 krónur að hafa barn í átta tíma dagvistun með fullu fæði en gjaldið er nú 29.560 krónur. Þá hækka skólagjöldin í Tónlistarskólann á Akureyri um sex prósent og skólavistun um fimm prósent.
throstur@vikudagur.is