Leikskóladeild á Iðavelli lokað vegna Covid-19

ðavöllur. Mynd: Bjarki Brynjólfsson.
ðavöllur. Mynd: Bjarki Brynjólfsson.

Þrjú börn á einni deild leikskólans Iðavallar hafa greinst með Covid-19. Deildinni hefur því verið lokað út þessa viku og börn og starfsfólk á deildinni fara í sóttkví. Enginn starfsmaður hefur greinst smitaður. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Smitið ætti að hafa lítil áhrif á starfsemi annarra deilda leikskólans Iðavallar. Hins vegar þurfa allir foreldrar, börn og starfsmenn leikskólans að sýna smitgát, nota grímur og spritt, svo forðast megi frekari útbreiðslu smitsins.


Athugasemdir

Nýjast