Ég vil trúa því að kosningabaráttan verði heiðarleg og málefnaleg. Hvað landsbyggðina varðar vona ég að framkvæmdamál verði ofarlega á blaði, ég nefni til dæmis samgöngur. Vinna við gerð Vaðalheiðarganga er að hefjast fyrir alvöru. Tekjur ríkissjóðs vegna sérstaks veiðigjalds koma til með að skila sér út á land og sömuleiðis arður vegna sölu banka, segir Steingrímur J. Sigfússon ráðherra í viðtali við Vikudag.
Þessa fjármuni á meðal annars að nota til að treysta innviði samfélagsins. Þótt sumum þyki lítið vera gert í þessum efnum, skulum við líta nokkur ár aftur í tímann. Það er nú ekki langt síðan að erfitt gat verið að komast til Siglufjarðar. Með Héðinsfjarðargöngum er lítið mál fyrir landann að skutlast þangað á hvaða árstíma sem er. Með tilkomu Vaðlaheiðarganga eflist og stækkar atvinnusvæðið á Norðurlandi enn frekar. Sem betur fer þoldi landsbyggðin almennt bankahrunið betur en höfuðborgarsvæðið. Þó ekki allir staðir. Á Akureyri er staðan í atvinnumálum býsna góð, það sýna til dæmis tölur um atvinnuleysi. ÍTARLEGT VIÐTAL ER VIÐ STEINGRÍM Í VIKUDEGI, ÞAR SEGIR HANN M.A. FRÁ FJALLGÖNGU OG ÁHUGAVERÐUM STÖÐUM Á AKUREYRI.