Læknar við HAK íhuga að hætta vegna álags

„Við ætlum að sjá hvort ekki leynist glaðningur í fjárlagafrumvarpinu sem lagt verður fram í næsta mánuði, þannig að hægt verði að bjarga framtíð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri,“ segir Þórir V. Þórisson yfirlæknir á HAK. Alls eru tólf stöður heimilislækna við Heilsugæslustöðina, ein staða hefur verið laus frá 1. febrúar 2011 og segir Þórir að hún hafi ekki verið auglýst enn þar sem engir peningar séu til svo ráða megi nýjan lækni. Einn læknir við heilsugæsluna er nýlega farin í sex mánaða leyfi og hefur afleysing verið tryggð fyrir hann.

Þórir segir að miðað við íbúafjölda ættu að vera fjórtán stöðugildi heimilislækna við Heilsugæslustöðina á Akureyri, en fjárveiting til hennar standi þó einungis undir ellefu stöðugildum með takmarkaðri afleysingu í fríum lækna. „Þessi munur veldur því að bið eftir viðtalstíma lengist og lengist, og er nú komin að meðaltali í rúmlega viku,“ segir Þórir. „Þetta leiðir líka til þess að læknarnir á HAK eru komnir á hnén af álagi og margir farnir að íhuga það, jafnvel upphátt, að hætta störfum hérna.“

Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags sem kom út í dag.

Nýjast