Kyrrðarstund á degi sjálfsvígsforvarna
Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Glerárkirkju á Akureyri í kvöld, kl. 20:00.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir leiðir stundina, aðstandandi segir frá reynslu sinni og Valmar Väljaots og Þórhildur Örvarsdóttir sjá um tónlistarflutning.
Í lok athafnarinnar gefst kostur á að kveikja á kertum til minningar um þau sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Eftir stundina verður kynning á starfi Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð og LIFA, landsamtaka aðstandenda eftir sjálfsvíg