Nei, nei, við höfum það ekki fyrir sið að gefa kúnum auka tuggu um jólin, enda má segja að í fjósinu séu jólin allan ársins hring þegar fóðurgjöf er annars vegar. Hér á árum áður var það nokkuð algengt að búpeningurinn fengi aukalega um jólin, en ég held að slíkt sé liðin tíð. Líklega eru þó einhverjir bændur sem halda þessum gamla sið, segir Helga Hallgrímsdóttir í Hvammi í Eyjafjarðarsveit.
Í fjósinu í Hvammi eru sjötíu mjólkandi kýr og segir Helga að alltaf hafi staðið til að setja upp jólaskreytingar í fjósið.
Einhverra hluta vegna höfum við ekki komið því í verk, en fyrst þetta er nú orðið opinbert verð ég líklega að setja upp jólaljós á næsta ári. Sumir bændur skreyta fjósin myndarlega, slíkt er bara skemmtilegt og ég er viss um að kýrnar fagna slíkum skreytingum.
Helga segir að vinnan í fjósinu breytist lítið hjá mannfólkinu.
Nei, hún gerir það ekki, það þarf áfram að mjólka tvisvar sinnum á dag. En við reynum eftir bestu getu að haga verkum okkar þannig að við getum verið sem mest heima. Mjaltirnar taka sinn tíma og við sinnum þeim að sjálfsögðu, en það er vissulega hægt að búa í haginn á ýmsum sviðum og það reynum við að gera á þessum árstíma.
karleskil@vikudagur.is