Kynna Sahaja yoga á Glerártorgi

Iðkendur Sahaja yoga verða með kynningu á Glerártorgi á laugardag, 19. janúar frá kl. 12 til 16.

Sahaja yoga gengur m.a. út á fræðslu, slökun og heilun og þykir góð leið til að öðlast jafnvægi í sálinni. Um er að ræða hugleiðsluaðferð til að stilla taugakerfið, auka orkuflæðið í líkamanum, tappa af spennu og ná slökun.

Sahaja yoga er forn hugleiðsluaðferð og á rætur að rekja til Indlands en þeir sem það stunda segja fjölda manns hafa fengið bót meina sinna með ástunduninni, m.a. við bakveiki, streitu og kvíða auk þess að losna undan oki fíkna á borð við tóbaks- og áfengisfíkn.

„Um þessar mundir herjar efnahagslega krísa um heim allan og kvíði og streita eru fylgifiskar slíks álagstímabils.

Mikilvægt er að fólk týni ekki sjálfu sér í depurð og vonleysi á alveg sama hátt og það týndi sér áður í ofurbjartsýni og veraldlegum gylliboðum heldur finni lausnir vandamála sinna í eigin hjarta á yfirvegaðan hátt. Það má færa viss rök fyrir því að rætur krísunnar í dag séu einmitt að finna í ójafnvæginu í heiminum, í sama ójafnvæginu og í okkur sjálfum.

Besta leiðin til að breyta heiminum á betri veg er því að byrja á að því bæta sjálfan sig,“ segir í tilkynningu frá Sahaja yoga iðkendum á Akureyri.

Nýjast