Kviknaði í rafmagnsskreytingu

Slökkviliðið á Akureyri var kallað út um níuleytið í gærkvöldi vegna elds í heimahúsi. Hafði kviknað í rafmagns aðventuljósi.

Að sögn varðstjóra hafði skreytingin dottið á gólfið og greinilegt að mikill hiti getur komið frá slíku ljósi þegar það liggur á gólfi.Þetta kemur fram á mbl.is

Heimilisfólk var á neðri hæð hússins og varð ekki vart við eldinn fyrr en nágranni úr næstu götu kom og gerði þeim viðvart.

Íbúar höfðu náð að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á staðinn en það kláraði að slökkva í glóð og reykræsti íbúðina. Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni af völdum reyks.

Nýjast