Góð þátttaka var í kvennahlaupinu á Akureyri í dag enda var veður hagstætt. Konur voru í rauðum bolum í ár og var Ráðhústorgið skrautlegt á að líta rétt fyrir klukkan 11 í morgun þegar Eva Reykjalín, Zumba-kennari hitaði konurnar upp fyrir hlaupið með suðrænum danstöktum. Hér má sjá nokkrar svipmyndir úr hlaupinu.