Kristján Þór Júlíusson sigraði með afgerandihætti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Kristján Þór og Tryggvi Þór Herbertsson sóttust báðir eftir fyrsta sæti, Tryggvi er ekkki meðal sex efstu.
Alls greiddu 2714 atkvæði, kjörsókn var því 61,7 %. Auð og ógild voru 78 atkvæði.
Niðurstöður eru eftirfarandi:
Í 1. sæti var Kristján Þór Júlíusson með 2223 atkvæði.
2. (í 1.2. sæti) var Valgerður Gunnarsdóttir með 1291 atkvæði.
3. (í 1.3. sæti) var Ásta Kristín Sigurjónsdóttir með 1158 atkvæði.
4. (í 1.4. sæti) var Jens Garðar Helgason með 1278 atkvæði.
5. (í 1.5. sæti) var Erla S. Ragnarsdóttir með 1529 atkvæði.
6. (í 1.6. sæti) var Bergur Þorri Benjamínsson með 1752 atkvæði.
Kristján Þór fékk 82 % í fytrsta sæti. Hann segir niðurstöðuna skýra.
Þátttakan í prófkjörinu var mjög góð og hvað mig varðar get ég ekki annað en verið ánægður og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Kjósendur hafa nú raðað í efstu sæti listans, sem ég tel vera mjög svo sterkan. Umboð sem kjósendur hafa veitt okkur er skýrt og ótvírætt.
Hann segir að kosningabaráttan hafi verið heiðarleg og málefnaleg.
Tryggvi Þór ákvað að sækjast eftir fyrsta sæti listans og ég sagði á sínum tíma að sú ákvörðun hans bæri vott um metnað. Niðurstaða prófkjörsins er skýr og það tel ég vera mikilvægt.