Kristján skattakóngur á Norðurlandi

Kristján Vilhelmsson.
Kristján Vilhelmsson.

Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri hjá Samherja, er skattakóngur á Norðurlandi en ríkisskattstjóri opinberaði í gær hæstu gjaldendur við álagningu gjalda árið 2012. Kristján greiðir 92.026.845 kr. og er sá sjötti hæsti á landsvísu. Þrír á Akureyri eru á listanum yfir þá fimmtíu sem greiða hæstu gjöldin. Auk Kristjáns eru það þeir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, sem greiðir 68.248.066 kr., og Hjörtur Georg Gíslason en hann greiðir 40.420.112 kr.

Samkvæmt álagningaskránni sem lögð var fram í gær kemur einnig fram að laun bæjarfulltrúana á Akureyri eru misjöfn. Starf þeirra sem bæjarfulltrúar er hlutastarf þannig að laun þeirra ráðast að mestu af aðalstarfi þeirra. Fjórir bæjarfulltrúar eru með meira en milljón í laun á mánuði og launahæsti bæjarfulltrúinn er með um það bil fjórföld laun þess sem lægstar tekjurnar hefur.

Sjá nánari útlistun á tekjuhæstu Akureyringunum í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.

Nýjast