10. nóvember, 2012 - 19:25
Fréttir
Frambjóðendur í prófkjörinu
Úrslit liggja fyrir í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. 832 flokksfélagar og stuðningsmenn kusu í netkosningu. Kristján L. Möller mun fara fyrir listanum.
1. Kristján L. Möller 609 atkvæði í 1. sæti
2. Erna Indriðadóttir 311 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Jónína Rós Guðmundsóttir 403 atkvæði í 1.-3.sæti
4. Sigmundur Ernir Rúnarsson 471atkvæði i í 1.-4. sæti
5. Helena Þuríður Karlsdóttir 517 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Örlygur Hnefill Jónsson 561atkvæði í 1.-6.sæti
Ekki þurfti að beita ákvæðum til þess að tryggja jafnt hlutfall kynja. Kosning er bindandi í 6 efstu sætin.