Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fer fram í dag og eru kjörstaðir 22 talsins, vítt og breitt um kjördæmið.Níu gefa kost á sér í prófkjörinu. Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson sækjast báðir eftir fyrsta sæti.
Um 4000 er á kjörskrá. Talið verður á morgun og verða úrslit væntanlega kynnt síðdegis.