Kornabörn undir stýri í Hrísey

Frá Hrísey
Frá Hrísey

 Hverfisnefnd Hríseyjar hefur áhyggjur ar umferðarmenningunni á staðnum og var málið sérstaklega rætt á síðasta fundi nefndarinnar. Í bókun um málið er lýst yfir áhyggjum af lausum börnum í bílum, kornabörnum undir stýri og farþegaflutningum á dráttarvélum.

Ákveðið var að senda áskorun til íbúa og gesta Hríseyjar um að virða umferðarlög og reglur. Bréf verður sent  bæjarstjórn og sömuleiðis lögreglunni á Dalvík.

Meginverkefni hverfisnefndar er að vera ráðgefandi um málefni eyjarinnar gagnvart bæjarstjórn Akureyrar.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast