Kom, sá og sigraði

Sigurður Barði Ólafsson með bjórinn, Október Kalda.
Sigurður Barði Ólafsson með bjórinn, Október Kalda.

Sigurður Barði Ólafsson bar sigur úr býtum á árlegri bjórkeppni að Hólum í Hjaltadal en keppnin fór fram sl. helgi. Sex bruggsmiðjur tóku þátt en Sigurður keppti fyrir hönd Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi sem framleiðir bjórinn Kalda. Það sem vekur ekki síst athygli er ungur aldur Sigurðar, en hann er einungis 21 árs og er þetta hans fyrsta uppskrift. „Ég er gífurlegur bjóráhugamaður. Ég drekk reyndar ekki mikið af bjór en finnst svakalega gaman að finna upp á nýjum tegundum,” segir Sigurður.

Vinningsbjórinn nefnist Október Kaldi og kemur í verslanir 24. september. Sigurður lýsir bjórnum þannig: „Þetta er millidökkt öl, þægilega beiskt, þétt maltur, sætur og þægilegur í drykkju.” Þrátt fyrir ungan aldur er Sigurður enginn nýgræðingur þegar kemur að bruggi. Hann er sonur þeirra Agnesar Sigurðardóttur og Ólafs Þrastar Ólafssonar sem stofnuðu Bruggsmiðjuna árið 2005 og fór hann sjálfur að brugga þegar hann var 17 ára. „Ég er búinn að vera með mömmu og pabba frá því í byrjun og fylgjast mikið með. Fyrir þremur árum síðan fór ég að vinna alfarið í bruggsmiðjunni og áhuginn og metnaðurinn fór að aukast.”

Stundar nám í bruggi

Sigurður stundar nú nám í bruggi en bóklega námið tekur hann í fjarnámi við tvo erlenda skóla og lýkur náminu innan skamms. „Þá verð ég orðinn diplóma í bruggun,” segir hann. Hann er hvergi nærri hættur og hyggur á frekari vinninga í bruggi þegar fram líða stundir. „Maður er strax farinn að leika sér með aðrar uppskriftir. Svo er markmiðið að sölsa undir sig Bruggsmiðjuna í framtíðinni,” segir Sigurður léttur.

throstur@vikudagur.is

Nýjast