Kjörsókn mest í Norðausturkjördæmi - Ólafur áfram forseti

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson

Ólafur Ragnar Grímsson sigraði í forsetakosningunum í gær en lokatölur lágu fyrir rétt fyrir kl 07:30 í morgun.  Ólafur var með tæplega 53% atkvæða, Þóra Arnórsdóttir með rúm 33%, Ari Trausti Guðmundsson tæp 9%, Herdís Þorgeirsdóttir tæp 3%, Andrea Ólafsdóttir tæp 2% og Hannes Bjarnason tæpt 1%. 

Kjörsókn á landinu öllu var um 69% en hér í Norðausturkjördæmi var hún heldur meiri eða slétt 72% og er það jafnframt mesta kjörsókn allra kjördæma í landinu.  Kjörsókn á höfuðborgarsvæðinu var undir 70% og í hinum landsbyggðarkjördæmunum var hún ríflega 70%.

Í Norðausturkjördæmi var munurinn ekki eins mikill milli Ólafs og Þóru og á landsvísu þóhann hafi vissulega verið afgerandi. Hér fékk Ólafur Ragnar   51,61%  en Þóra 34,31% atkvæða. Ari Trausti fékk 9,18%, Herdís fékk 2,85%, Andrea fékk 1,7 % og Hannes 1,35% atkvæða.

Nýjast