Kjarnaklass verður ein af stöðvum skógarins

Miðað við æskufjörið sem hljóp í tvo gamalreynda garðyrkjumenn, þá Kristján Þorvaldsson, Stjána í Ga…
Miðað við æskufjörið sem hljóp í tvo gamalreynda garðyrkjumenn, þá Kristján Þorvaldsson, Stjána í Garðverk og Begga, Bergsvein Þórsson, hjá Skógræktarfélaginu sem unnu að hönnun og uppsetningu og vígðu svæðið má ætla að gleði muni ríkja í Kjarnaklass til framtíðar. Mynd/Skógræktarfélag Eyjafjarðar

mth@vikubladid.is

„Kjarnaclass er eitt af þeim verkefnum sem við vinnum að í Kjarnaskógi, grunnurinn klár og eitt tæki komið niður, við fáum svo fleiri eftir efnahag,“ segir Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga.  „Kjarnaskógur með öllum sínum lýðheilsumannvirkjum er ein stærsta líkamsræktarstöð landsins.“

Fyrsta líkamsræktartækið er komið upp á Kjarnaklass vellinum, en hann er að rísa rétt við snyrtingarnar í Kjarnakoti. Um er að ræða öflugt upphífingartæki en Ingólfur segir að til standa að bæta fleirum við, allt að 10 minni tækjum til vibótar, sem og bekkjun og aðstöðu fyrir hópa að safnast saman, t.d. fyrir ferð um skóginn eða til að teyja á eftir túrinn. 

„Við vonumst til að Kjarnaclass virki bæði sem sjálfstæð eining  og einnig sem ein stöð af mörgum í skóginum þannig að fólk geti gengið, hjólað, faðmað tré, skellt sér í bekkpressu, teygt og slakað  í einni og sömu heilsubótargöngunni,“ segir Ingólfur.

 Kjarnavöllur endurbyggður í sumar

Fjölmörg verkefni eru framundan í sumar líkt og vanalega. Ingólfur nefnir að um þessar mundir sé vinna að hefjast við endurbyggingu á Kjarnavelli, en völlurinn er eitt af þremur leiksvæðum Kjarnaskógar. „Við setjum þar upp sérstakt svæði sem hentar undum börnum og leggjum einnig upp með að svæðið nýtist á veturnar með tengingu við sleðabrekku. Á þessum svæði munu tröllið og geiturnar þrjá búa,“ segir hann.

Átak verður gert í viðhaldi stíga, grisjun skógarreita og þá sérstaklega meðfram stígum til að rýma fyrir nýjum snjótroðara sem tekin verður í gagnið næsta vetur. Reist verður skýli yfir sög og snjótroðara í sumar.

Skógræktarfélagið hefur einnig umsjón með fjölda reita í Eyjafirði, Vaðlareit, Laugalandsskógi, Leynishólum og Hánefsstaðreit og verður unnið við alla þessa reiti á komandi sumri. Miðhálsskógur í Hörgársveit á afmæli í ár og verður haldið upp á það, en Ingóflur segir að skógargöngur og ýmsir aðrir viðburðir verði í boði í sumar.

Kjarnaklass

 


Athugasemdir

Nýjast