Kettir á Akureyri um 5000, en aðeins 167 skráðir

Ljóst er að eigendur katta á Akureyri  hafai ekki sinnt ákvæði í nýrri reglugerð þess efnis að allir kettir skulu skráðir, en um nýliðin áramót voru 167 kettir löglega skráðir hjá Akureyrarbæ.     Einungis  er því mjög lítill hluti katta  skráður, því vitað er að í bænum eru 2089 eyrnamerktir kettir og 200 örmerktir.

Eftir því sem menn komast næst er talið að á bilinu 4-5000 kettir séu í bænum, en sú tala er byggð á upplýsingum frá dýralæknum.  Miðað við þá tölu er greinilegt að illa hefur gengið að smala köttum bæjarins inn til skráningar og segir Jón Birgir Gunnlaugsson  forstöðumaður umhverfismála/Framkvæmdamiðstöðvar ljóst að eigendur katta fari ekki eftir samþykkt um kattahald í bænum með því að skrá þá.  „Bæjaryfirvöld verða að fara í eins konar átak til að fá eigendur katta til að ská þá og við munum vekja athygli á því að kettir eiga að vera skráðir.  Ef við tökum ketti munu þeir ekki fara frá okkur aftur nema merktir,“ segir hann.

Skráningargjald fyrir hvern kött er  7.500 krónur.  Færu eigendur katta að reglum, skráðu ketti sína og greiddu skráningargjald hefði bæjarsjóður úr töluvert hærri upphæð að spila eða sem nemur  að minnsta kosti 30 milljónum króna.  Og er þá varlega áætlað að kettir séu ríflega 4000 talsins.

Nýjast