Kertafleyting á Akureyri í kvöld

Samstarfshópur um frið stendur fyrir árlegri kertafleytingu við Minjasafnstjörnina á Akureyri í kvöld kl. 22:00 til að minnast fórnarlamba kjarnorkusprenginganna í Japan árið 1945. Jafnframt er bent á að nú dökkna ófriðarskýin yfir Sýrlandi og Miðausturlöndum. Tilefnið er því notað til að hafna vestrænni hernaðaríhlutun austur þar. Ávarp flytur Þórarinn Hjartarson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga á Norðurlandi. Samstarfshópur um frið hvetur fólk til að sýna hug sinn í verki og fjölmenna.

Nýjast