Kemur ekki til greina að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki

Björn Valur Gíslason. Mynd/Karl Eskil
Björn Valur Gíslason. Mynd/Karl Eskil

Vinstri græn í Norðausturkjördæmi hafa ekki ákveðið formlega hvernig staðið verður að uppstillingu á framboðslista flokksins við næstu alþingiskosningar, líklegast er þó talið að efnt verði til forvals. Flokkurinn er nú með þrjá þingmenn í kjördæminu. Steingrímur J. Sigfússon fór fyrir listanum síðast og  hefur sterklega gefið til kynna að hann sækist eftir endurkjöri. Þuríður Bachman sem var í öðru sæti, hefur tilkynnt að hún ætli ekki að sækjast eftir endurkjöri. Björn Valur Gíslason skipaði þriðja sæti, segist ekki vera búinn að taka ákvörðun um framboð.

„Auðvitað hefur vaður velt þessu öllu saman fyrir sér, en ég get ekki sagt af eða á í þessari stundu.“  Hann segir að í komandi kosningabaráttu verði árangur núverandi ríkisstjórnar veginn og metinn. „Við leggjum óhrædd verkin í dóm hins almenna kjósanda. Ríkisstjórnin hefur náð mjög góðum árangri í vægast sagt þröngri stöðu. Fjárlög ríkissjóðs fyrir næsta ár sýna að við erum á réttri braut.“ Og hann segir að ekki komi til greina að Vinstri græn starfi með Sjálfstæðisflokki í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. „Nei, það get ég ómögulega séð fyrir mér, miðað við stefnu Sjálfstæðisflokksins  í dag, sem er sú sama og fyrir fimm árum síðan. Þannig að ég útiloka þann flokk algjörlega.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast