KA og Grindavík mætast á Akureyrarvelli í kvöld í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Borgunarbikarnum, og hefst leikurinn kl. 18:00. Þetta er þriðja árið í röð sem KA mætir Grindavík í bikarnum en Grindavík sló KA út úr keppni í 32-liða úrslitum keppninnar í fyrra. Við þekkjum ágætlega að mæta Grindavík og ætlum að hefna fyrir tapið í fyrra. Ég met okkar möguleika góða en við verðum að hitta á góðan leik og takist það getum við vel farið yfir þessa hindrun, segir Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA.