Mér sýnist verslunin í desember ætli að vera ágæt í ár og veltan verði svipað og í fyrra, segir Aðalsteinn Árnason kaupmaður á Akureyri. Jólaverslunin nær hámarki um helgina og að sögn Aðalsteins eru verslunarmenn á Akureyri almennt sáttir.
Þetta fór heldur seinna af stað vegna veðurofsans í nóvember. Veðrið bitnaði hressilega á okkur kaupmönnum og þrjár helgar sem voru handónýtar hvað verslun varðar. En mér sýnist að fólk hafi í staðinn verslað meira á styttri tíma, þannig að þetta jafnast út, segir Aðalsteinn.
Í svipaðan streng tekur Vilborg Jóhannsdóttir verslunareigandi. Verslun hefur farið vaxandi eftir því sem liðið hefur á mánuðinn og ég geri ráð fyrir að þetta verði fín vika. Það skiptir máli að fá fólk úr nágrannabyggðunum og þá spilar veður og færð inn í.
Flestar verslanir verða opnar til kl. 22:00 fram að jólum. Á aðfangadag eru verslanir almennt opnar til hádegis.
throstur@vikudagur.is