Kaupmenn flýja Glerártorg á Akureyri

4000 fermetrar á Glerártorgi standa auðir
4000 fermetrar á Glerártorgi standa auðir

Hátt í 4000 fermetrar á jarðhæð verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs eru ekki nýttir. Um er að ræða tíu verslunarrými sem standa auð, en alls eru liðlega fjörutíu rými í boði. Hjörleifur Hallgríms Herbertsson hefur rekið kvenfataverslun á Glerártorgi, en ákvað að flytja hana í Amaróhúsið í miðbæ Akureyrar í síðustu viku.

 „Leigan á Glerártorgi er vitleysislega há og margir leigutakar eru óánægðir, enda hefur verslunum á Glerártorgi fækkað verulega. Leigan á Glerártorgi  er fjórum sinnum hærri en í Amaróhúsinu, þannig að þetta var ekki spurning í mínum huga. Ég veit um nokkra sem vilja yfirgefa Glerártorg,“ segir Hjörleifur.

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast