Fundur um möguleg áhrif flutnings miðstöðvar innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri í dag, klukkan 12:00. Fundurinn er á vegum Akureyrarbæjar, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og KPMG. Í skýrslu KPMG kemur fram að atvinnulífið á landsbyggðinni verði einhæfara, flytjist miðstöð innanlandsflugs til Keflavíkur.
Á fundinum flytur Flosi Eiríksson hjá KPMG erindi um áhrif þess að færa innanlandsflug til Keflavíkur. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar ræðir um mikilvægi Reykjarvíkurflugvallar fyrir heilbrigt atvinnulíf og stjórnsýslu.Fundarstjóri verður Geir Kristinn Aðalsteinsson stjórnarformaður AFE. Allir eru velkomnir á fundinn, sem hefst klukkan 12:00.
Umfjöllun Vikudags um skýrsluna í síðustu viku:
Atvinnulífið á landsbyggðinni verður einhæfara, þar sem stór fyrirtæki með höfuðstöðvar úti á landi treysta mikið á flug. Menningarlífið á landsbyggðinni verður fábrotnara, því erfiðara verður að standa undir metnaðarfullu og skapandi menningarlífi á landsbyggðinni án góðra samgangna. Starfsskilyrði háskólastofnana og annarra menntastofnanna á landsbyggðinni verða erfiðari svo og uppbygging á metnaðarfullu skólastarfi á landsbyggðinni. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu sem KPMG hefur unnið varðandi flutning á innanlandsflugi frá Reykjavík til Keflavíkur. Landsbyggðin í heild sinni verður afskekktari þegar innanlandsflug dregst saman. Gott aðgengi að menningu, menntun og þjónustu í víðasta skilningi er einn af þeim meginþáttum sem áhrif hafa á búsetuval fólks, segir enn fremur í skýrslunni sem KPMG vann fyrir sex sveitarfélög á landsbyggðinni. Skýrsluhöfundar segir að rekstrarkostnaður fyrirtækja á landsbyggðinni aukist, ásamt því að fyrirtækin missi starfsmenn lengur frá vinnu sökum aukins ferðatíma, ef innanlandsflug flyst til Keflavíkur. Það er hluti af lífsgæðum um land allt að geta sótt menningarviðburði, sýningar og fleira þess háttar með tiltölulega einföldum hætti. Í því sambandi er gott að hafa í huga að stofnanir eins og Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit Íslands reka sína starfsemi í Reykjavík en sinna öllum landsmönnum, segir í skýrslu KPMG um áhrif flutnings miðstöðvar innanlandsflugs til Keflavíkur frá Reykjavík, segir í skýrslunni.