Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Vatnsskarði um helgina, þegar fólksbíl var ekið út af veginum, hét Björgvin Smári Jónatansson. Hann var á 63. aldursári og til heimilis á Akureyri. Björgvin Smári var einn á ferð, þegar bifreið hans hafnaði utan vegar. Bíliinn valt ekki en Björgvin Smári var úrskurðaður látinn á slysstað. Ekki er ljóst hvernig slysið bar að en unnið er að rannsókn málsins.