Páll Rúnar Traustason og Einar Hjartarsson, félagar í Ferðafélagi Akureyrar, fóru í gær í eftirlitsferð í skála félagsins í Laugafelli. Þegar þeir nálgust skálann sáu þeir bíl fyrir utan og skömmu síðar komust þeir að því að inni í skálanum var kanadískt par sem hafði leitað þar skjóls fyrir óveðrinu í byrjun vikunnar. Parið hafðist því við í skálanum í nærri sex sólarhringa.
Við ætluðum bara að ganga frá ýmsu fyrir veturinn og datt auðvitað ekki í hug að þarna væri fólk. Þetta voru karl og kona frá Kanada, á fimmtugs aldri. Þau brugðust hárrétt við öllum aðstæðum, voru róleg og tóku greinilega réttar ákvarðanir í einu og öllu. Þau voru ekki með síma og gátu því ekki látið vita af sér, segir Páll Rúnar.
Á þessum slóðum er talsverður snjór, þannig að bíllinn er fastur. Skálinn í Laugafelli er hlýr og í honum er að finna nokkuð af matvælum, en þau voru líka með mat í bílnum. Þau voru búin að skipta matarbirgðunum upp í þrjátíu skammta, einn skammt fyrir hvern sólarhring. Í þessari stöðu hefðu einhverjir reynt að ganga til byggða, en sem betur fer reyndu þau ekkert slíkt, heldur létu fyrir berast í skálanum og biðu eftir hjálp.
Fólkið hafði reynt að vekja athygli á sér, skrifað SOS í snjóinn, sett endurskinsmerki á fánastöng og áberandi dúk á þak bílsins. Fólkið fór með Páli Rúnari og Einari til Akureyrar, bíllinn verður svo sóttur þegar aðstæður leyfa. Maður gleymir þessu sjálfsagt seint, þetta var afar ánægjuleg björgun, segir Páll Rúnar Traustason.