Kanadíska ferðafólkið sem var innlyksa í Laugafelli í sex sólarhringa hefur sent þeim Páli Rúnari Traustasini og Einari Hjartarsyni þakkarbréf. Fólkið segir hárrétt hafi verið að bíða í skálanum eftir hjálp.
Páll Rúnar og Einar, sem eru félagar í Ferðafélagi Akureyrar, fóru um helgina í eftirlitsferð í skála félagsins í Laugafelli. Þegar þeir nálgust skálann sáu þeir bíl fyrir utan og skömmu síðar komust þeir að því að inni í skálanum var kanadískt par sem hafði leitað þar skjóls fyrir óveðrinu í byrjun vikunnar. Parið hafðist því við í skálanum í nærri sex sólarhringa. Þeir félagar segja að fólkið hafi brugðist hárrétt við aðstæðum. Í morgun fengu þeir stutt þakkarbréf:
Kæru Páll og Einar !
Við þökkum ykkur kærlega fyrir að hafa bjargað okkur úr skálanum í Laugafelli og fyrir alla aðstoðina. Okkur er mjög létt. Á leiðinni til byggða gerðum við okkur grein fyrir því að við hefðum ekki bjargast án ykkar aðstoðar, ákvörðunin að bíða í skálanum var rétt. Við gistum á Akureyri í gærkvöld og vonumst til að fljúga heim á mánudaginn. Við sendum ykkur betra þakkarbréf er heim er komið, segir meðal annars í þakkarbréfinu.
Fólkið hafði reynt að vekja athygli á sér. Skrifað SOS í snjóinn, setti endurskinsmerki á fánastöng og áberandi dúk á þak bílsins.
karleskilPvikudagur.is