Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikverkið Kaktusinn eftir Juli Zeh 1.mars næstkomandi. Fyrsti samlestur leikhópsins var í vikunni og öll önnur vinna við uppsetninguna er komin á fullt.
Kátt var á hjalla á samlestrinum enda eru leikarar og leikstjóri spenntir fyrir vinnunni sem er framundan. Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri LA er leikstjóri verksins og leikarar eru þau Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson. Tinna Ottesen sér um búninga og leikmynd og Jóhann Bjarni Smárason lýsingu.