KA vann HK í hörkuleik

KA sigraði HK 3-2 í fyrsta leik vetrarins í Mikasa-deild karla í blaki en leikið var í KA-heimilinu í gær. KA vann fyrstu tvær hrinurnar 25-22 og 25-17 en töpuðu næstu tveimur 19-25 og 17-25. Það þurfti því oddahrinu til að ná fram úrslitum og  eftir harða baráttu unnu KA menn 15-10. Stigahæstu leikmenn heimamanna voru Piotr Kempisty með 38 stig, Ævarr Freyr Birgisson 11 stig og Filip Szewczyk og Árni Björnsson skoruðu 5 stig hvor. Í liði HK voru stigahæstir þeir Alexander Stefánsson með 17 stig, Brynjar Pétursson 10 stig og Aðalsteinn Eymundsson 8 stig.

KA og HK mættust einnig í kvennaflokki KA-heimilinu í dag þar sem HK sigraði 3-0. Hrinurnar fóru 25-11, 25-16 og 25-16. Stigahæstu leikmenn KA voru Alda Ólína Arnarsdóttir með 8 stig, Arnrún Eik Guðmundsdóttir 5 stig og Hafrún Hálfdánardóttir 4 stig. Þess má geta að Arnrún Eik er yngsti leikmaður KA, aðeins 13 ára og gríðarlega efnileg. Stigahæstu leikmenn HK voru Fríða Sigurðardóttir með 12 stig, Laufey Sigmundsdóttir og Pálmey Pálmadóttir með 6 stig hvor.

Nýjast