KA vann Þrótt, 1-0, er liðin áttust við á Akureyrarvelli í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. Það var Brian Gilmour sem skoraði eina mark leiksins á 66. mínútu og tryggði með því norðanmönnum mikilvæg þrjú stig í toppbaráttunni. Þróttur hefur með tapinu í kvöld nánast stimplað sig út úr baráttunni um sæti í úrvalsdeildinni en KA á enn möguleika. KA situr í fimmta sæti deildarinnar með 29 stig eftir nítján leiki, þremur stigum frá öðru sætinu en liðin í kring eiga flest leik til góða á morgun.