KA burstaði ÍR

Mynd: Sævar Geir.
Mynd: Sævar Geir.

KA kjöldró ÍR er liðin mættust á Akureyrarvelli í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 5-1 KA í vil en heimamenn höfðu 2-1 yfir í hálfleik. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvívegis fyrir KA og þeir Davíð Rúnar Bjarnason, David Disztl og Gunnar Valur Gunnarsson sitt markið hver. Mark ÍR skoraði Trausti Björn Ríkharðsson. Eftir sigurinn er KA komið í fjórða sæti deildarinnar með sextán stig en ÍR hefur fjórtán stig í áttunda sæti.

Nýjast