Jötunn Vélar opna útibú á Akureyri

Stjórn Jötunn Véla hefur ákveðið að opna útibú á Akureyri í mars næstkomandi og er opnunin liður í að efla þjónustu og færa nær viðskiptavinum Jötunn Véla á Norðurlandi.
Útibússtjóri á Akureyri verður Hrafn Hrafnsson en fljótlega mun verða auglýst eftir tveimur starfsmönnum til viðbótar auk þess sem verið er að leita að hentugu húsnæði undir starfsemina.

Í útibúinu verður starfrækt verslun með breiðu úrvali varahluta og rekstrarvara undir svipuðum formerkjum og er í verslun Jötunn Véla á Selfossi. Viðgerðarþjónusta mun áfram verða í höndum Brimborgar á Akureyri.

Jötunn Vélar er innflutnings­fyrirtæki véla og tækja fyrir landbúnað og græn svæði. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og eru höfuðstöðvar þess á Selfossi. Meðal helstu vörumerkja Jötunn Véla eru: Massey Ferguson og Valtra dráttarvélar, Pöttinger og McHale-heyvinnutæki og Schäffer Lader liðléttingar. Starfsmenn Jötunn Véla verða 25 eftir þessar breytingar.

Nýjast