Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til áframhaldandi setu á Alþingi næsta kjörtímabil og býður sig fram í 2. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Ég hef átt sæti á Alþingi frá 2009 og öðlast við það fjölþætta þekkingu og reynslu bæði af störfum mínum í ýmsum nefndum innan þings og utan, á ferðum mínum um víðfeðmt kjördæmi og til Evrópu vegna starfa í þingmannanefnd EFTA og EES.
Ég hef lagt mesta áherslu á velferðarmál, ár mín á þingi,enda verið varaformaður heilbrigðis og velferðarnefndar um skeið. En ég hef viljað afla mér víðtækari þekkingar og reynslu með því að starfa tímabundið í stjórnskipunar og eftirlitsnefnd, allsherjar og menntamálanefnd, iðnaðarnefnd og nú síðast tók ég sæti 2. varaformanns í atvinnuveganefnd. Þá er ég varaformaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og á sæti í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.
Ég hef unnið markvisst í þágu fatlaðs fólks með formennsku í samráðsnefnd um yfirflutning á málaflokknum frá ríki til sveitafélaga og vinnu við framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Þá sit ég í starfshópi velferðarráðherra um endurskoðun á lögum um almannatryggingar. Þessi ár hafa veitt mér innsýn í fjölbreytt störf löggjafasamkomunnar og hvernig nýta má þau í þágu fólks á landinu öllu.
Fyrri reynsla mín sem íbúi og sveitarstjórnarkona á landsbyggðinni, bætist við þingreynsluna og auðveldar mér að vinna áfram að gerð trausts ramma um efnahag, umhverfi og félagslegar aðstæður samfélaga, fyrirtækja, fjölskyldna og einstaklinga um allt land, í anda jafnaðarstefnunnar.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, alþingismaður, Egilsstöðum.