Jóhann tryggði KA sigur í Víkinni

Gunnar Valur Gunnarsson er fyrirliði KA.
Gunnar Valur Gunnarsson er fyrirliði KA.

KA gerði góða ferð suður yfir heiðar í dag er liðið sigraði Víkingi Reykjavík 1-0 á Víkingsvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. Það var Jóhann Helgason sem skoraði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik. Með sigrinum fer KA upp í fjórða sæti deildarinnar með nítján stig, en liðið hefur betri markatölu en Víkingur sem situr í fimmta sætinu með sama stigafjölda.

Nýjast