Jazzað á Græna hattinum

Valdimar Guðmundsson
Valdimar Guðmundsson

Tónleikahelgin á Græna hattinum hefst í kvöld fimmtudagskvöld en  þá stendur Jazzklúbbur Akureyrar fyrir Heitum fimmtudegi en það er tónleikaröð sem starfrækt hefur verið um árabil hjá Jazzklúbbnum og Jón Hlöðver hefur haft veg og vanda að. En í sumar verða þessir viðburðir reglulega á Græna Hattinum og hefjast með Jazzkvartett sem nefnist Tusk og eru það Pálmi Gunnarsson, Kjartan Valdimarsson, Birgir Baldursson og Edward Lárusson sem skipa kvartettinn. Tónleikarnir hefjast kl.21.00

 Á föstudagskvöld er það hljómsveit sem nýbúið er að blása lífi í að nýju en það er Funkmaster 2000. Það eru vanir menn sem skipa bandið en þeir eru: Ómar Guðjónsson gítarleikari, Helgi Svavar Helgason trommari, Valdi Kolli bassaleikari og Hannes Helgason Fender Rhodes og Hammondleikari sem skipa bandið.Plata er í smíðum og það er allt að gerast hjá þessum snillingum. Tónleikarnir hefjast kl.22.00

 Á laugardagskvöld er það flauelsbarkinn og ljúflingurinn Valdimar Guðmundsson sem syngur öll sín fallegu og vinsælu lög ásamt öðru sem hann kemur gestum á óvart með.Tríó Ómars Guðjónssonar leikur undir hjá honum. Tónleikarnir hefjast kl.22.00

Nýjast