Jarðtenging í Verksmiðjunni á laugardag

Verk eftir Marzieh Emadi & Sina Saadat
Verk eftir Marzieh Emadi & Sina Saadat

Myndlistarsýningin Jarðtenging / Grounded Currents opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardaginn 18. júní  kl. 14 með verkum listafólksins: Maryse Goudreau, Hugo Llanes, Zinnia Naqvi, Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur, Marzieh Emadi & Sina Saadat.

Sýningin er alþjóðleg samsýning yngri kynslóðar listafólks. Þau vinna ekki út frá einni einstakri sameiginlegri hugmynd og verkin eru sum marglaga í merkingu sinni eða nokkuð flókin enda verður það helst ára staðarins & óvenjulegt rýmið sem að mótar öðru fremur umgjörð fyrir samstarf og heild og virkjar sköpunarkraftinn.. Þau vinna sjálfstætt á staðnum og/eða fyrirfram að nýjum verkum. "Verksmiðjan er ekki aðeins rými sýningarstaðarins, heldur einnig rými athafna sem mótast og er mótað af tíma- og rýmisbundnum samskiptum. Verksmiðjan er óhefðbundið rými og ekki hlutlaust sem hefur fremur tekið mið af ljóðrænni afstöðu listamannanna sem þar haft sýnt og starfað".

Listafólkið á ýmislegt sammerkt og eru að nokkru leiti valin út frá því. Þau vinna öll með videómiðilinn og þá líka teiknimyndir eða animation ásamt ýmsum öðrum aðferðum samtímalistar, þau eru með manneskjuna, samfélagið til athugunar og/eða umhverfið og náttúruna sem að á hug margra á þessum síðustu tímum.


Athugasemdir

Nýjast