Jafnt í háspennuleik í Höllinni

Bjarni Fritzson á flugi.
Bjarni Fritzson á flugi.

Akureyri og FH skildu jöfn, 23-23, í hörkuleik í Höllinni á Akureyri í kvöld í fyrstu umferð N1-deildar karla í handknattleik. Staðan í hálfleik var 13-12, Akureyri í vil. Bæði liðin fengu tækifæri til þess að knýja fram sigur í lokin en allt kom fyrir ekki og jafntefli niðurstaðan. Bjarni Fritzson var markahæstur í liði Akureyrar með sjö mörk og Geir Guðmundsson og Bergvin Þór Gíslason skoruðu fimm mörk hvor. Hjá FH var Ragnar Jóhannsson markahæstur með 13 mörk.

Nýjast