Jafnt í fjögurra marka leik á Akureyrarvelli

Mynd: Sævar Geir.
Mynd: Sævar Geir.

KA og BÍ/Bolungarvík gerðu jafntefli í kvöld, 2-2, á Akureyrarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu. KA komst yfir í tvígang en gestirnir voru fljótir að jafna í bæði skiptin. David Disztl kom heimamönnum yfir á áttunda mínútu en Pétur Georg Markan jafnaði fyrir gestina mínútu síðar. Þegar stundafjórðungur var til leiksloka kom Hallgrímur Mar Steingrímsson KA yfir á ný en það stóð ekki lengi því Pétur Markan jafnaði fyrir BÍ/Bolungarvík tveimur mínútum síðar. Lokatölur, 2-2. KA hefur þrettán stig í fimmta sæti deildarinnar en BÍ/Bolungarvík tólf stig í sjötta sæti.

Nýjast